Tveir stjórnarmeðlimir Pókersambands Íslands lögðu af stað í ferðalag í morgun. Það eru þau Eirný Sveinsdóttir og Viktor Einarsson. Ferðinni er heitið til London þar sem þau munu taka þátt í árlegri ráðstefnu á vegum International Federation of Poker.
Ráðstefnan er haldin á sama tíma og hið árlega Mind Sport Festival. IFP mun setja upp keppni í Duplicate Poker á milli 12 valinna landsliða víðs vegar úr heiminum. Sem dæmi um spilara sem taka þátt í þessari keppni með sínu landsliði eru t.d Barry Greenstein, Antonio Esfandiari, Tony G, Gus Hanses ásamt fleiri stórum nöfnum.
IFP mun einnig halda hið fyrsta opinbera Heimsmeistaramót í Póker um helgina sem gengur undir nafninu “The Table” (IFP World Championship of Poker). Þar mun Hrannar Hallgrímsson vera fulltrúi Íslands og taka þátt í því móti þar sem hann vann sér þáttökurétt á undanmóti sem fram fór á vegum PSÍ á Gullöldinni síðastliðinn September. Verðlaunafé á mótiinu er 500.000$ og mun sigurvegari mótsins fá 250.000$ í sinn hlut.
Það er engin tilviljun fyrir því að IFP sé að halda þessi tvö flottu mót á sama tíma og Mind Sport Festival fer fram. Markmið IFP yfir þessa hátíð er að kynna póker sem hugaríþrótt og festa hann í sessi sem slíka íþrótt
Ég hvet allt pókeráhugafólk til að skoða heimasíðu IFP og Facebook síðu þeirra þar sem má t.d sjá upplýsingar um landsliðin sem taka þátt í Duplicate Poker og meðlimi þeirra.







